msn: umfb@hotmail.com


Dec 11, 2006
flutningar í gangi

Ég er fluttur

Eins og öllum sé samt ekki sama

 

http://www.myspace.com/hshelgason


Posted at 05:18 pm by hafthor
Make a comment  




Sep 4, 2006
Muna eftir gamla Shape meðlimnum....

 

Eins og einhverjir hafa orðið varir við þá er hann Magni víst að keppa í einhverri keppni í útlöndum. Er þá ekki um að gera að kjósa strákinn. Get ekki neitað því að maður er drullustoltur af stráknum og ekki leiðinlegt þegar hann er að taka lög sem við vorum að spila mikið saman í gamla daga. Ég er líka að fara að spila á Holtakránni bráðum en það er víst ekki alveg eins töff, en samt þokast ég hægum skrefum í átt að heimsfrægð líkt og hann frændi minn.

Áfram Magni, áfram Borgarfjörður og áfram ég.


Posted at 10:59 am by hafthor
Comments (1)  




Aug 30, 2006
Aftur til RVK

Jæja þá er maður kominn aftur til Reykjavíkur og skólinn byrjaður. Það er spruning að fara að blogga eitthvað aftur. Sumarið fljótt að líða eins og venjulega en það vara alveg hryllilega gaman fyrir austan, mikil vinna og fullt af skemmtilegu spileríi eins og það á að vera. Reyni kannski að vera duglegur í vetur.

Hafþór Snjólfur


Posted at 08:33 am by hafthor
Comments (1)  




Jun 22, 2006
...

Það hlaut að koma að þessu. Einhver úr SHAPE er farinn út í lönd að meika það. Að vísu ekki ég. Er á Reyðarfirði að sandspartla einshver hús þannig að Magni minn sér bara um þetta fyrir hópinn. Nú fer platan okkar vonandi að seljast og ég sé fram á gífurleg stefgjöld af lögunum. Best að segja upp á eftir og fara að lifa lífinu.

 

Bestu óskir til Magna um gott gengi. Hvern hefði grunað þegar við vorum tveir niðri í kjallara í Brekkubæ í gamla daga að spila Metallica-lögin, að Jason myndi jafnvel nota þig í bandinu sínum. Veröldin er svo sannarlega skemmtileg.


Posted at 01:37 am by hafthor
Comments (2)  




Jun 5, 2006
Sumarfrí

Jæja. Ég nenni þessu ekki í sumar enda alveg nóg að gera. Ekki eins og það kíki margir hingað inn hvort eð er. Takk fyrir mig í bili og kannski að eilífu. Blogg er bóla sem er sprungin.

Hafþór Snjólfur Helgason


Posted at 09:53 am by hafthor
Make a comment  




Apr 26, 2006
...

Það er erfitt að vera námsmaður. Ég er kominn með prófkvíðann eins og alltaf og það er ekkert nema jákvætt við það, þá lærir maður kannski eitthvað. Var reyndar bara að kaup bókina í landfræðilegum upplýsingkerfum í gær og prófið er eftir viku. Isss þetta eru ekki nema einhverjar 400 síður af stanslausri skemmtan fyrir lúðann.

Ég verð eitthvað lítið að blogga á næstunni en það skellur á mikil bloggveisla í sumar með tilheyrandi stuði. Verð á EGS í sumar þannig að ég mun eflaust gera einhverjar stuttmyndir svona til að stytta ykkur lífið.



Posted at 05:09 am by hafthor
Comments (3)  




Apr 25, 2006
Enn eitt ballið....

Wilson Rockness verður með dansleik í Valhöll á Eskifirði föstudaginn 28. apríl. Erum að spila í einhverju lokuðu samkvæmi frá 11:00 - 01:00 en þá opnar fyrir almenning. Vonandi lætur einhver sjá sig enda ekkert annað um að vera.


Posted at 04:21 pm by hafthor
Make a comment  




Apr 10, 2006
Wilson Rockness

Wilson Rockness verður með dansleik í Herðubreið á Seyðisfirði föstudaginn langa kl 00:00 (sem sagt eftir miðnætti á föstudaginn) og að verður helvítis stuð held ég. Alltaf gaman að spila á Seyðisfirði. Allir að mæta, það er ekkert annað sem kemur til greina enda ekkert að vera upp á Héraði.

 


Posted at 07:20 am by hafthor
Make a comment  




Apr 9, 2006
...

Ætla að taka smá pásu en kem einhverntíman aftur

 


Posted at 05:12 pm by hafthor
Comments (1)  




Mar 25, 2006
Svarthöfði og ég

Eyrún systir kommst að nokkru skemmtilegu á íslendingabók. Við eigum forföður sem hét Svarthöfði. Djöfull er það svalt. Góðan daginn, Svarthöfði Björnsson hérna, er geilsasverðið mitt komið? Einhver að bögga þig og þú heggur hanna í herðar niður með geilsasverðinu. Færð aldrei stöðumælasekt því þú drepur alla stöðumælaverðina með huganum einum saman og fellur aldrei í prófi í Háskólanum og þarft aldrei að að borga fyrir pítsur. Snilld. Ég held ég ætli í tilefni af þessu að skíra frumburð minn Svarthöfða þegar að því kemur, sama hvort það verður strákur eða stelpa og verður barnið alið upp við hina myrku hlið aflsins. Ég vissi alltaf að ég var með kraftinn, enda kominn í þráðbeinan karllegg af Svarthöfða.

Hafþór Geimgengill Helgason


Posted at 03:13 am by hafthor
Comments (3)  




Next Page

Heimkynni Hafþórs



Hafþór Snjólfur Helgason
Uppruni: Borgarfjörður eystri
Aðsetur: Suðurgata 121 101 RVK
Sími: 863-2320
Mail: hsh2@hi.is

MSN: umfb@hotmail.com