
Eyrún systir kommst að nokkru skemmtilegu á íslendingabók. Við eigum forföður sem hét Svarthöfði. Djöfull er það svalt. Góðan daginn, Svarthöfði Björnsson hérna, er geilsasverðið mitt komið? Einhver að bögga þig og þú heggur hanna í herðar niður með geilsasverðinu. Færð aldrei stöðumælasekt því þú drepur alla stöðumælaverðina með huganum einum saman og fellur aldrei í prófi í Háskólanum og þarft aldrei að að borga fyrir pítsur. Snilld. Ég held ég ætli í tilefni af þessu að skíra frumburð minn Svarthöfða þegar að því kemur, sama hvort það verður strákur eða stelpa og verður barnið alið upp við hina myrku hlið aflsins. Ég vissi alltaf að ég var með kraftinn, enda kominn í þráðbeinan karllegg af Svarthöfða.
Hafþór Geimgengill Helgason