msn: umfb@hotmail.com


Mar 22, 2006
London Baby!!!!

Snilldin ein í alla staði. Fórum sem sagt saman út vinnufélagarnir úr Málningunni á tvo leiki í úrvalsdeildinni ásamt nokkrum öðrum góðum félögum. Nenni ekki að þylja langa ferðasögu. Það var bara einfaldlega gaman.

  • Sáum Arsenal vinna Charlton á Highbury og Fulham vinna Chelsea á Craven Cottage.
  • Hótelið frábært
  • Fólkið skemmtilegt,
  • Bjórinn góður
  • fótboltinn og stemmningin á vellinum stórkostleg.
  • Rugluðum í allskonar fólki og vorum landi og þjóð til skammar.
  • Trúbbaði í 2. klst á píanóið á hótelinu, tók Dararamm og Blindsker m.a.
  • Misnotaði roomservice,
  • Át nokkur kíló af skeggi og beikoni
  • Fékk anorexíu

Þessi fallegi leigubíll sá um að koma okkur út á völl eins og yfirmannanna er von og vísa. 17 kvikindi komust léttilega fyrir í drossíunni.

Gummó hagaði sér eins og sannur sjentilmaður á Highbury og varð Stöðfirðingum og súlunni til sóma. Smakkaði það varla, enda að jafna sig eftir að hafa drepist í flugvélinni daginn áður.

Gummó,,,, mér þykir vænt um þig.

Hér sjást fagnaðarlætin á Craven Cottage þegar Fulham lagði Chelsea. Hópslagsmál og alles. Reyndum að láta þau vera.

Ég er að vinna í myndbandi um þessa ferð.

Hafþór Snjólfur - Heimsborgari

 

Posted at 04:44 pm by hafthor
Comments (1)  




Mar 15, 2006
Íslenskt málfar

Ég hef ákveðið að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að breyta íslensku málfari svo að það verði meðfærilegra.

Framvegis verður Örn Ingi stórvinur minn ekki fallbeygður öðruvísi en á eftirfarandi máta...

Hér er Örn
Um Örn
Frá Örni
Til Örns

Meikar miklu meira sens.

Ég hvet alla til að gera hið sama

Hafþór Snjólfur - Málfarsbyltingarsinni

Posted at 04:27 pm by hafthor
Comments (4)  




Mar 6, 2006
...

Á mánudögum er palnið svona hjá mér.

Vakna kl 9 til að fara í Vatna og loftslagsfræði. Tíminn er búinn hálf 11 og þar með er það upptalið sem ég þarf að gera í dag. Svona eru 3 dagar vikunnar, 1 tími og svo bara borað í nefið það sem eftir er af deginum. Ég fór að fá töluvert samviskubit yfir þessum aumingjaskap og er farinn að vinna helling. Merki bíla og hús hjá BP merkingu þegar ég get og svo er ég orðinn stoltur starfsmaður ÁTVR á Eiðistorgi. Er þar alla föstudag og stundum á Laugardögum.

Í ÁTVR kemmst maður í tengsl við almenning þessa lands. Búinn að afgreiða allt fræga fólk landsins held ég og eina ofurstjörnu. Eftirfarandi texti sýnir það að ég er kominn í samband við stórstjörnur á heimsmælikvarða.

Leikritið. Björk og Snjólfur

Staðsetning: ÁTVR Eiðistorgi.

Persónur og leikendur: Björk Guðmundsdóttir og Hafþór Snjólfur.

Það er föstudagur, Hafþór ráfar um búðina að þykjast gera eitthvað af viti, Björk labbar inn og skoðar sig um.

Björk: Fyrirgefðu, Áttu nokkuð kassa af þessu freyðivíni hérna?

Hafþór: (vandræðalegur eins og fífl) Uhhhhh,,,, já bíddu, ég fer og gæ bakvið.....

Skömmu seinna kemur Hafþór fram með kassann.

Hafþór: Gjörðu svo vel.

Björk: Takk

The End

Svona er maður að mynda sambönd við fræga liðið. Hver veit nema ég verði farinn að tromma með henni innan skamms.

Hafþór Snjólfur - Stoltur starfsmaður ÁTVR


Posted at 03:52 am by hafthor
Comments (6)  




Mar 2, 2006
London calling!!!!




Þvílík gleði og hamingja. Þökk sé mínum ástkæru vinnuveitendum austur á Héraði er ég að fara til London í nokkra daga til þess eins að verða íslandi til skammar, horfa á tvo leiki í úrvalsdeildinni og sötra nokkra potta af öli. Spennan er gífurleg og dagarnir fram að ferð allt of lengi að líða.

 Arsenal - Charlton og Fulham - Chelsea verða þeir leikir sem hópurinn mun sjá. Hefði reyndar alveg verið til í að fara á Anfield en fótbolti er alltaf fótbolti. Mér er alveg drullusama hver vinnur og alveg sama hver tapar, ætla bara að halda með þeim sem vinna. 20 og eitthvað manna hópur af snargeðsturluðum héraðsbúum, þetta getur ekki annað en endað illa. Ég, Gummó graði og Heimir erum að plana handrit að mynd sem verður frumsýnd hér á síðunni eftir heimkomu.

Útlönd rules, Ísland sucks

Hafþór Snjólfur. Heimsborgari

Posted at 11:39 am by hafthor
Comments (1)  




Feb 27, 2006
Andri og Hafþór...

Það er alltaf gaman þegar fólk í kringum mann er að gera góða hluti. Þeir tónlistarbræður mínir úr Wilson Rockness Andri Bergmann og Hafþór Valur eru í vetur búnir að vera við nám hjá Þorvaldi Bjarna í allan vetur að læra inn á stafræna upptökutækni, lagasmíðar, útsetningar og fl fl. Ég vona að þeir reiðist mér ekki fyrir að leka þessu lagi þeirra hér með inn á Internetið.

Þetta er sem sagt lagið „LEIT“ eftir þá félaga við texta Dr. Sigurðar Ingólfssonar sem hefur einna helst unnið sér til frægðar að spila með mér í sumar og að vera session-básúnuleikari The Cocksuckerband þegar færi gefst.

Þetta gerðu þeir félagar frá A-Ö með aðstoð landsliðsins í hljóðfæraleik. Óli Hólm á trommur, Kjartan Valdimarsson á hljómborð, Írafárs-Vignir á Gítar, Eiður Arnarsson á bassi og svo spila þeir eitthvað sjálfir. Ég var ekki valinn í landsliðshópinn að þessu sinni en hver veit nema að ég fái kallið einhverntíman og spili eitthvað fyrir þá félaga.

Einnig má segja frá því að Wilson Rockness er jafnval að fara að taka upp og að sjálfsögðu munum við fyrst tala upp cover á EASY LIVING með Uriah heep. Það er víst besta lag sem hefur verið samaið frá lokum síðustu ísaldar.

En hér kemur sem sagt lagið LEIT eftir þá félaga. Downloadið, eigið og njótið.

Hlusta á lagið

Hafþór Snjólfur - Alhliða ólöglegur dreifingaraðili á tónlist.

P.s.  Muna að kjósa í Guggnum hér að neðan. Spennandi kosningar í gangi


Posted at 09:09 am by hafthor
Comments (2)  




Feb 20, 2006
Guggurinn 2006

Víst að maður er að reka kvikmyndasamsteypu þá er nauðsynlegt að veita sjálfum sér verðlaun fyrir vel unnin störf. Ég er búinn að setja dágott safn af myndböndum í gegnum tíðina og nú er komið að því að þið veljið hvað stendur upp úr á þessu tímabili. Það eru alveg fáránlega margir sem skoða þetta sem er bara gott.

Þið ágætu lesendur eruð hér með kominn með atkvæðisrétt og þar með meðlimir í akademíunni.

Atkvæði eru greidd með þar til gerðum mekanisma efst til hægri á síðu

Verðlaunin eru skírð í höfuðið á Gumma frá Reykjavík sem afsalaði sér þessu fallega og hljómþýða nafni. Hann verður sérstakur verndari verðlaunanna og heiðursgestur við afhendingu í Mýnesi á vordögum.

Fólki heimilt er skilt að gera grein fyrir atkvæði sínu með því að kommenta hér að neðan.  

(Einnig má kjósa leikara ársins með því að kommenta.)

Það eru 10 myndir tilnefndar í flokknum

mynd áranna 2004 - 2005

 

Pedals myndböndin I og II

Myndböndin varpa ljósi á þroskaferil stórkostlegrar og kynþokkafullrar ballhljómsveitar. Varðveitir miklar heimildir um tónlistarsögu alheimsins og sýnir að allt er hægt ef hæfileikarnir eru til staðar. Hlaðin af góðri tónlist og faglegri spilamennsku og áhugaverðum viðtölum.

Cowshed Café

Myndband sem er gert við stórkostlegt lag THE COCKSUCKER BAND. Klippt saman úr allskyns ónotuðu myndefni sem ég hef tekið. Algjört kjaftæði út í gegn en hentar laginu vel. Lagið fjallar um Fjósakaffi sem Óttar og Skúli stefna að að koma á laggirnar á næstunni.

Sveitastuð

Segir frá hljómsveitinn The Cowboys og leit þeirra af uppruna sveitatónlistarinnar. Leitin dregur þá upp í Fljótsdal þar sem þeir finna upprunann og taka í tilefni af því lagið. Hlaðin góðri tónlist og fallegri náttúru Fljótsdalsins.

Eyjar 2004

Mikil sagnfræðileg heimild um skemmtanalíf Íslendinga og hefur mikið forvarnargildi. Magnús Einþór á stórleik í myndinni og var tilnefndur Eddunnar fyrir leik sinn.Myndefni er að miklu leiti frá Soffíu Tinnu og telst hún því meðframleiðandi þessarar myndar. Afbragðs skemmtan fyrir alla fjölskylduna.

Minning Lagarfells 8

Myndinni er ætlað að halda á lofti minningu partý vetursins mikla í Lagarfell 8 í Fellabæ. Myndin sýnir á einstaklega raunsæjan hátt hvernig á ekki að fara með 240 fm einbýlishús sem þú ert á leigu. Myndin er að vísu ritskoðuð til að vernda orðspor vissra aðila (Einars Hróbjarts, Gúnda, Arnars, Tinnu Árna og fl og fl.Afbragðs skemmtan sem kallar fram fortíðarþrá og löngun í bjór og sveitt partý.

Klippikvöld KO og Snjólfs

Sjaldan hefur verið gerð mynd af minn tilefni. Ég var farinn að vorkenna KO svo mikið yfir óeðlilega miklum hárvexti þannig að við brutumst inn til Arnar Inga og snoðuðum strákinn í stofunni hjá honum. Frekar súr mynd en sýnir fram á fagurfræðilegt gildi þess að snyrta sig annað slagið. KO á stórleik sem ófríði strákurinn sem verður að sjarmatrölli.

Ólafsvaka 2005

Hálfgerð heimildarmynd um hvernig íslensk og færeysk menning fléttast saman í góðan hrærigraut kjaftæðis og skemmtunnar. Hefur mikið forvarnargildi. Skemmtileg blanda af fallegri náttúru og ljótum leikurum. Sýnir fram á nauðsyn þess að fara á Ólafsvöku allavegana einu sinni. Rykki á stórleik.

Náttúrfever

Fátt er betra en að æða á vit náttúrunnar og láta hana umvefja sig daginn eftir skemmtanahald og næturbrölt. Náttúruferðar eru ómissandi þeim sem ánetjast þær. Frekar súr mynd en hefur mikið sagnfræði og uppeldislegt gildi. Skúli Magnússon, upphafsmaður og aðal náttúruferðarfari Norðurlanda er í stóru hlutverki.

Hjólkoppastuð

Rosalega súr mynd og gerð úr nákvæmlega engu. Vorum að leita að hjólkoppum fyrir Örn Inga og kíkja til hjólkoppakóngs Íslands. Ko og Örn eiga stórgóðanleik ásamt hjólkoppa Hjálmari sem er leikinn af sér sjálfum.

Pizzastuð

Pizzuklúbburinn Elli var starfræktur í fyrra. Hann samanstóð af mér og KO, og einum gestafélaga sem var Örn Ingi. Við hittumst alltaf á Þriðjudagskvöldum og fórum í BSÍ til að snæða Pizzusamloku og Kók í bíl KO´s. Tilgangur myndarinnar er nákvæmlega enginn og það er ekki hægt að segja að hún skilji mikið eftir sig. Samt ágætis skemmtun fyrir fólk sem borðar pizzur í bílnum sínum.

Vinsamlegast kjósið ykkar mynd efst til hægri

Með þökk.

Hafþór Snjólfur

framkvæmdastjóri hafthormedia.

 


Posted at 07:59 am by hafthor
Comments (7)  




Feb 8, 2006
ég á gamlar myndir....

Þessi ógleymanlega mynd er hér með tekinn til endursýningar. Sjaldan hefur nokkur mynd komið mér jafn oft í gott skap. Guðmundur frá Svíþjóð klikkar ekki!!!!

Var annars að gramsa í myndasafninu og fann auglýsingar frá þættinum sem ég og Magnús Einþór vorum með í Menntaskóla útvarpinu. Aldrei hafa verið gerðar fallegri auglýsingar. Svolítið hommalegar en það var jú tilgangurinn.

Þessi er líka góð.

Hafþór Snjólfur. Myndaeigandi


Posted at 09:21 am by hafthor
Comments (3)  




Feb 1, 2006
Stórviðburður

Við tiltekt hjá skjalaverði hafthor media fannst gamalt myndband sem hafði aldrei komist á netið en því verður breytt í dag. Þetta er myndbandið Sveitastuð sem var tekið upp í sumar. Njótið vel...

 

Sveitastuð

Uhh smá beiðni frá mér. Ég eyði meiri tíma en þið getið mögulega ímyndað ykkur í að klippa þessi helvítismyndbönd. Það er því skilda að kommenta til að ég sjái hverjir séu að sjá þetta. Kannski er enginn að því þannig ef lítið verður kommentað þá hætti ég að gera þessi videó.

Hafþór Snjófur - Kvikmyndagerðarmaður


Posted at 11:08 am by hafthor
Comments (14)  




Jan 27, 2006
The cocksuckerband.

 

SJÁ MYNDBAND

hafthor media stendur í stórræðum þessa dagana og er farinn að taka að sér að gera myndbönd fyrir hljómsveitir á heimsmælikvarða. Fyrsta myndbandið sem ég geri er við lagið COWSHED CAFÉ  eða fjósakaffi eftir Skúla og Óttar í the Cocksuckerband. Þessi hljómsveit er í miklu uppáhaldi hjá mér eins og mörgum öðrum. Ég tengist þessari hljómsveit smá því að stundum er ég í henni, en oftast ekki. Mæti á æfingu ca. þriðja hvert ár.

En alla vegana, gjöriði svo vel. Lagið Cowshed Café með  the Cocksuckerband við myndskreytingar eftir sjálfan mig.

Endilega kommentið og segið álit ykkar á mynd og hljóði.

Hafþór Snjólfur - Myndbandagerðarmaður


Posted at 09:15 am by hafthor
Comments (3)  




Jan 25, 2006
Pedall

Það er sem sagt komið nýtt myndband með pedal og vonandi mun það stytta ykkur stundirnar í skammdeginu. Ég og KO erum búnir að sitja sveittir við að klippa þetta handa ykkur i Interlandinu.

Sjá Myndband.

Kveðja

KO entertainment og hafthormedia


Posted at 11:48 am by hafthor
Comments (2)  




Previous Page Next Page

Heimkynni Hafþórs



Hafþór Snjólfur Helgason
Uppruni: Borgarfjörður eystri
Aðsetur: Suðurgata 121 101 RVK
Sími: 863-2320
Mail: hsh2@hi.is

MSN: umfb@hotmail.com