Entry: Svarthöfði og ég Mar 25, 2006



Eyrún systir kommst að nokkru skemmtilegu á íslendingabók. Við eigum forföður sem hét Svarthöfði. Djöfull er það svalt. Góðan daginn, Svarthöfði Björnsson hérna, er geilsasverðið mitt komið? Einhver að bögga þig og þú heggur hanna í herðar niður með geilsasverðinu. Færð aldrei stöðumælasekt því þú drepur alla stöðumælaverðina með huganum einum saman og fellur aldrei í prófi í Háskólanum og þarft aldrei að að borga fyrir pítsur. Snilld. Ég held ég ætli í tilefni af þessu að skíra frumburð minn Svarthöfða þegar að því kemur, sama hvort það verður strákur eða stelpa og verður barnið alið upp við hina myrku hlið aflsins. Ég vissi alltaf að ég var með kraftinn, enda kominn í þráðbeinan karllegg af Svarthöfða.

Hafþór Geimgengill Helgason

   3 comments

Sjonni
April 10, 2006   04:10 AM PDT
 
hehehe... snilld
eyrœn hrefna
March 29, 2006   05:20 AM PST
 
...enda kemur ekki annaÝ til greina en aÝ akkœrat hann hafi veriÝ forfaÝir okkar.
eyrœn hrefna
March 29, 2006   05:19 AM PST
 
jebb, folk segist sja svip meÝ okkur og ߇ er Žg aÝ meina SvarthšfÝa œr Star Wars.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments